Aðalvalmynd

Auglýsing

Myndasíðurnar mínar

Könnun

Þessi þáttur er bestur

Flýtibloggblogg

19. nóvember 2008 klukkan 15:42
ég ætla ad blogga í flýti thad er nefnilega brjálad ad gera hjá mér til thess ad nota gamalt klíche. ég hef ekki tíma til ad læra vegna thess hvad er mikid ad gera í skólanum - hversu skondid er thad? og svo hef ég tvö próf á sama tíma í janúar thannig ad thá hef ég ekki einu sinni tíma til ad vera í prófi vegna thess af ég er thegar í prófi. en ég verd bara ad gleypa kameldýrinu (eins og madur segir í Danaveldi).
ég var ad lesa bloggid hans Tomma og thad er mjög vel skrifad og ofsa fyndid, thad ættu allir ad lesa thad í stadinn fyrir moggann... en ég er med íslenska bók hérna vid hlid mér nefnilega gagnfrædakver handa háskólanemum en ætla ég ad lesa thar hvernig á ad skrifa ritgerd thví ég reyndi thad í gær en gafst upp eftir 8 tíma og adeins 10 línur og margar bladsídur af bulli komnar. ég er greinilega búin ad gleyma thví hvernig á ad gera thetta thannig ad ég ætla ad sofa med blessada gagnfrædakverid undir koddannum og gá hvort ég verd ekki súper flink á morgun. Já.

b-b-b-b-bid ad heilsa ykkur

Emmmilie

Thridjudagur

11. nóvember 2008 klukkan 11:28
Takk fyrir kommentin Sæa og Nonni. Gaman ad heyra fréttir :) Ég hef ekki heyrt neinar sögur Sæa en mér finnst ad fólk ætti frekar ad vorkenna íslendingum. Margir tala um thetta eins og thad hafi verid ykkur sjálfum ad kenna en mér finnst ad ríkisstjórnin hefdi átt ad grípa inn ádur en ad thetta endadi svona illa. Ég heyrdi um daginn ad margir hafa framid sjálfsmord út af thessu - er thad satt?
Ég hlakka svo til ad koma aftur til Íslands og hitta ykkur. Mig langar ad koma í haust og fara í göngur en væri líka til í ad fara í Janúar ef ég hef efni á thví. Ég er ad fara ad flytja hestinn minn til Danmerkur og thad kostar sitt. Thad thýdir nefnilega ekkert ad selja hann á Íslandi thar sem ad verdid á hestum hefur lækkad alveg fáranlega mikid og ekki vil ég fá borgad í íslenskum krónum!
Öss ég væri til í ad geta skellt mér í pottinn med pottaklúbbinn um helgina - afhverju er svona langt á milli Danmkerkur og Íslands ha??
Ég er ad drukkna í rigningu og er í blautum sokkum eftir ad hjóla í skólann í morgun. Thad var bæ de veí einn á hjóli sem keyrdi á gangandi strák sem hljóp út á hjólabrautina. Hann meiddi sig adeins. En allir hlaupa út á hjólabrautina thegar strætóin koma og er thad alveg ótholandi.
Ég var ad vinna í gær á elliheimilinu og skemmti ég mér bara mjög vel med gamla folkinu. Thad er gömul kona sem heitir Emilie eins og ég og er köllud Mille eins og mín fjölskylda kallar mig... Ég er solltid stressud ennthá thví ég hef litla yfirsýn og er med 8 sem ég á ad sjá um.  
Hann afi minn er nýordinn 84 ára en hann hafdi engan tíma til ad halda upp á afmælid sitt thví hann thurfti sko ad vinna, já!
Thad er brjálad ad gera hjá mér thessa dagana, er á kafi í skólavinnu og janúar prófin ad nálgast. Thar fyrir utan er ég ad fara á tónleika á föstudaginn og ásamt 5 vinkonum mínum en kærastinn minn spilar í hljómsveitinni. Hann er ad fara ad hitta vinkonur mínar í fyrsta skipti og ég vini hans - iss ég hlakka til!! Á laugardaginn er ball í skólanum og vid bordum hjá Lenu úr bekknum ádur. 29. Nóv. er ég ad fara til Sønderborg ad heimsækja Helgu og Palla ádur en thau flytja aftur heim.

Thetta var allt í bili. Hafidi thad gott thangad til næst elsku vinir :)

Kosningar, nám og dans

05. nóvember 2008 klukkan 16:29
Já hvad ég er glöd ad Obama vann kosningarnar í BNA!! Núna verdur heimurinn ad betri stad. Ég er viss um thad.

Ég er á fullu í skólanum og ekki mikid annad ad frétta. Danskennslan á midvikudögum er nice. Vid lærum alskonar dansa frá sudurameríku - Son, bachata, reggaeton og fleira. Ég er ad verda betri (segi ekki gód) en stundum sný ég mér ítrekad í vítlausa átt eda stíg ofan á fætur stráksins. En vid skemmtum okkur... Allavegana ég hehe.
Í skólanum er allt ad gerast og ég er ad verda gód í bordfótbolta (adallega thad). Eda nei, ég tapa alltaf og kann ekki neitt en ég spila oft! Barinn á föstudögum er líka NICE og bjargar mér alveg. Sídast var kúrekathema sem thýdir rodeobull og squaredance (shit thad gerdu sér allir ad fíflum en gaman var!). Yfirstrikunarpenni er ordid eitthvad sem ég eydi eins og klósettpappír. Sumir segja ad ég strika of mikid yfir, adrir ad ég les of mikid...?! Ég held ad mig dreymi kenningar um sjálfid og um mismunandi námsadferdir.
Ég sakna Íslands og allra á Íslandi. Er kominn snjór? Og hvernig er med efnahagsástandid? Thid megid alveg segja mér adeins frá thví. Mér finnst mjög erfitt ad halda samandi vid fólk thó svo ad mig langar til thess. Ég veit ekki alveg hvernig ég á ad fara ad thví. Kannski med thví ad vera duglegri ad senda tölvupóst??? Hvad finnst ykkur?
í Janúar flyt ég til vinkonu minnar sem býr nálægt midbæ Árósar en hún á 3 gullfiska (thess vegna flyt ég thangad, já!). Ég ætla ad leigja herbergi hjá henni og thá verd ég nær midbænum og háskólanum. Núna bý ég 9 km utan vid Århus og kem sveitt á hverjum morgni eftir ad hjóla 11-12 km. Á örugglega eftir ad vera sveitt áfram samt thar sem ad háskólinn er stadsettur í brekku daudans (efst Í brekkunni audvitad!).
Á morgun er mega partí med bekkinn og vinabekk okkar - Hold 2. Ég hlakka til!!

 

Lestur

29. september 2008 klukkan 09:54
Skólinn er á fullu og thad er alveg rosalega mikid ad lesa. Ég er ánægd med námid og á audvelt med ad muna thad sem vid lærum af thví ad mér finnst thad svo spennandi. Er í námssálfrædi og persónuleika- og félagssálfrædi. Námssálfrædin er frekar leidinleg finnst mér en kannski er thad út af thví ad kennarinn okkar um thessar mundir er alveg drep leidinlegur... Ég fæ annad herbergi í dag og er ordin spennt. Ég er bara búin ad vera í aukaherbergi í húsinu thar sem ég leigi. Thad verdur gott, thá get ég verid med allt dótid mitt og mín eigin húsgögn. Um helgina kemur mamma í heimsókn og vid ætlum í bíó og í sund og líka ad laga til í herberginu og svona. Á midvikudaginn er ég med fyrirlestur ásamt 2 ödrum stelpum og vid erum á fullu ad plana hann. Thad verdur spennandi hvernig fer... :S Er kannski búin ad fá vinnu sem ABA-thjálfari fyrir einhverfan strák en thad er ekki alveg komid á hreint. Thad er thá 7 tíma á hverjum fimmtudegi.

Nýnemavikan kenndi mér margt

30. ágúst 2008 klukkan 19:56
Byrjadi í sálfrædina hér í Århus á mánudaginn í thessari viku. Ég er búin ad kynnast fullt af skemmtilegum krökkum og námid virdist mjög vel skipulagt. Félagslega umhverfid er frábært og vid erum mikid búin ad dansa og syngja í vikunni og fórum líka í íthrottakeppni sem adallega gekk út á ad drekka bjór, snúa sér í hringi, renna sér í brúnni sápu, henda eggjum (OG grípa!)... Vid unnum ekki en vid unnum reyndar aukakeppninni enda erum vid hópur 1! En vid erum 215 í sálfrædinni á fyrstu önn og er í bekk med 15 ödrum. Já og ég er búin ad fá mikla thjálfun í ad spila fótboltaspil. Enda er thad markmidid mitt ad vera ordin heimsmeistari í fótboltaspili thegar ég klára námid. Án gríns.

Århus, djamm og sveitarball

16. ágúst 2008 klukkan 21:33

Kíkti í partí til vinkonu minnar í gær. Það var stöööð við spiluðum drykkjuspil (ég drakk ekki út af veikinni), fórum í borðfótbolta (Margit á þannig) og dönsuðum. Ég kynntist nýju fólki og hitti stelpurnar ásamt Frank (kærastinn hennar Julie vinkonu). Síðan skelltum við okkur niður í bæ (í Hróarskeldu) og þar voru ÞRÍR á fyrsta staðnum sem við ætluðum á þannig að við fórum á annan stað sem var hreinn viðbjóður. Ég er ekki mikið fyrir að fara á djammið í DK vegna þess að maður þekkir engan og margir koma með það fyrir augu að hitta einhvern og manni líður eins og kjötstykki sem er verið að meta fituna á eða eitthvað svoleiðis. Stelpurnar líta allar út eins og vændiskonur og karlarnir eru allir tanaðir í drasl og það mætti halda að þeir væru gjörsamlega desperate! Dreif mig fljótlega heim. Öss mig langar á alvöru íslenskt sveitarball, það veit maður hvað er.
Í dag skelltum við mamma okkur til Århus til að skoða herbergi og fann ég eitt sem var í lagi og ætla að leigja það tímabundið þangað til að ég er búin að fá mér vinnu og get leigt íbúð í miðbænum. Það var voða kósí í miðbænum, fullt af kaffihúsum og fólki og rosa stemmari.
Í dag frétti ég að norðan að Emilie eðla er handarbrotin! Ég held að ég verð að skella mér til Akureyrar til Jóhans til að lækna Emilie eðlu.

Interrail

12. ágúst 2008 klukkan 08:51
Vid Nonni komum heim í gær eftir ad vera búin ad ferdast um Evrópu í 27 daga. Vi fórum í gegnum Thýskaland til Basel í Swiss thar sem vid vorum eina nótt. Fórum út um kvöldid og fengum okkur Mojito á skemmtilegum bar thar sem vid sátum á svölum. Lentum líka í svakalegri rigningu thar. Í stad thess ad bída med ad fara út hlupum vid út og flúdum inn á McDonalds thar sem Nonni fekk sér einn sveittan og vid vorum rennandi blaut :) Basel var falleg borg med á sem renndi í gegnum og mikid af gömlum fallegum húsum.
Frá Basel héldum vid áfram til Sudurfrakklands og vorum thar á mismunandi stödum í um tvær vikur held ég. Thad var rosalega fallegt og vid syntum í ám, fórum í canyoning (stukkum af klettum í gljúfri, klifrudum og fleira) og fórum í göngutúra og margt fleira. Mamma mín og Johan bródir komu og voru med okkur í viku. Vid hittumst í Castellane í fjöllunum og eftir nokkra daga fór Nonni til Ítalíu ad hitta vin sinn og vid fórum áfram og vorum vid rosalega fallegt vatn (Lac de Castellion). Vid eyddum tímanum í ad synda og sigldum líka á vatninu á hjólabáti. 
Frá vatninu keyrdum vid í áttina ad Nice og gístum í fjallthorpi á tjaldstædi. Vid bordudum thar á flottum veitingastad týpiskan franskan mat. Ég fékk á medal annars snigla paté í raudvínssósu sem var mjög spes en gaman ad prufa thad.
Johan og mamma fóru heim med flugi frá Nice og ég tók lestina til Feneyja á Ítalíu thar sem ég hitti Nonna. Vid gistum eina nótt í Feneyjum og eyddum deginum í ad skoda okkur um. Thad var mögnud upplifun enda hefur okkur alltaf langad til ad skoda Feneyja. Thad eina sem er hægt ad setja út á er hvad allt er dýrt og allt of margir túristar. Thad kostadi til dæmis 80 til 120 evrur ad sigla med gondóla thannig ad vid fengum ekki ad prufa thad. Thad eru kanalar í götunum og sumar götur enda bara í kanal og ef madur labbar lengra fer madur bara á kaf. Thad er hægt ad taka "leigubát" á kanalnum og húsin hafa hurdir sem snúa ad vatninu. 
Næstu nótt gistum vid í Treviso hjá vinkonu Nonna og manninum hennar en thau eiga kaffihús thar. Thau voru med grískt kvöld og vid Nonni hjálpudum theim ad thjóna og vaska upp og fleira. Thad var rosalega gaman og einn gesturinn sem var vinur theirra hrósadi okkur mikid fyrir framkomu okkar og fleira. Thad var gaman ad kynnast Ítölum á annan hátt en madur gerir vanalega sem túristi. 
Jæja núna ætla ég ad gera eitthvad. Skrifa meira seinna. 
Jú ég gleymdi ad segja ad ég fékk inn í skólann í Århus og er ad leita mér ad íbúd thar. Mér finnst skrítid ad vera ad flytja frá Íslandi og mig langar eiginlega mest aftur á Akureyri. En núna sé ég hvernig thetta verdur, ég er allavegana heppin ad vera ein af theim sem fengu inn thví mjög margir fá ekki pláss.

Sex and the City

28. júní 2008 klukkan 11:57
Ég gleymdi að segja að ég fór í bíó með Margit og Julie vinkonur mínar á Sex and the City og það er mesta snilld! Allir sem fíla þættina verða að fara á þessa mynd hún er alveg voðalega góð. Og maður verður að vita hvað gerist hjá Carrie og Mr. Big... úúú... Mig langaði bara að fara beint á hana aftur þegar hún var búin.

Blogg

28. júní 2008 klukkan 11:48
Er komin tíma á að blogga? Hmm já kannski það... Ég tók tvö upptökupróf í mælitæki og matsaðferðir í sálfræði í maí mánuði í Kaupmannahöfn og náði þeim báðum. Ég fékk vinnu strax er ég kom frá Íslandi á kaffihúsinu Ceci í Hróarskeldu. Það var gaman að vinna þar og kynnast skemmtilegu fólki en vaktirnar voru 9-10 tíma í senn, stundum meira, og við fengum hámark 30 mínutna hlé á hverri vakt og brjálað að gera allan tímann. Ég var því ansi búin á því eftir hverri vakt og að lokum gat ég ekki sofið af því að ég var orðin alveg hyper og fólk sagði að það var erfitt að tala við mig...?! En síðan varð ég veik á afmælisdeginum mínum þann 14. júni. Hausverkur, illt í hálsinum og þess háttar. Hmm allt í lagi með það. En þetta versnaði og mér leið allt annað en vel. Fór til læknis 3. áður en hann fékk þá brilljant hugmynd að ég væri með mononucleosis og tók blóðprufu. Var sko með hálskirtla á stærð við döðlur! Mononucleosis er orsökuð af vírus sem kallast Epstein Barr vírus og ræðst á lifrina í sumum tilfellum (í mínu). Sjúkdómurinn er kallaður "kyssesyge" på dansk vegna þess að smitinn berst í slefi hehe... En já, hálsbólgan og öll veikindin endist í tæplega tvær vikur og ég er enn á lífi!! hehe... Núna er ég betri, sef bara mikið og drekk vatn allan tímann. Í mínu tilfelli er reiknað með því að það tekur líkamanum ár að vinna baug á vírusinum og ég má því ekki drekka áfengi í ár. Næstu mánuði má ég ekki iðka snertiíþrottir eins og boks og ég má ekki detta af hestbaki (damn it!). Læknirinn sagði reyndar að ég mætti fara á bak en bara ekki detta af...Veit ekki hversu mikla stjórn hann heldur að maður hefur á því hvort maður dettur eða situr. En ég er öll að koma til og stefni á að skella mér á Skelduna á morgun eða hinn. Þarf að hitta vini mína og upplifa eitthvað eftir svona langan tíma í rúminu. Ætla bara að gísta heima samt.

Gullkorn dagsins

28. apríl 2008 klukkan 20:37
Góð vinkona mín kom með gullkorn dagsins:

ég er þreytt
kann ekki neitt
minni mitt er ekki breitt
leyfðu mér að vera óáreitt.
 
allt er breytt
og langar í eithvað feitt
því það er heitt

Svona er að vera háskólanemi kvöldið fyrir próf!

Innskráningar kubbur

Prófíll

  • Nafn: Emilie Theil Nielsen
  • Atvinna: Hæna
  • Hjúskaparstaða: Hundur
  • Um mig: ha? hvað??
  • Annað: Nei

...

Við sáum bara sól á himni þínum
þegar þú lékst þér með öllum hinum
og þú hélst áfram að geisla og brosa
þó þú gast ei við þessu þig losað
Nú sjáum við engin sól í myrkrinu
allt loft liggur þungt yfir landinu

Ljós þín hafa slokknað
en við kveikjum ljós á ný
í minningu okkar um þig

Nú vitum við ekki hvar þú ert
vitum ekki hvert sál þín berst
en jú ég sé blikkandi ljós á himni þínum
og veit að þú ert rétt hjá öllum vinum
um stund varstu farinn frá mér
en núna ertu aftur og alltaf hér

E.T.N.